
Veislur og matseðlar
Veisla framundan? Kíktu á úrvalið
Við setjum veisluna saman nákvæmlega eftir þínum óskum. Matseðlarnir okkar eru aðeins dæmi um þær kræsingar sem hafa kitlað ófáa bragðlauka.
Hugsum stórt … en hugum ætíð að því smæsta
Oft er tilefnið svo sérstakt að því hæfir engin hefðbundin umgjörð. En þá komum við til sögunnar og sköpum fyrir þig þá veislu sem hentar þínu einstaka tilefni.
Við útvegum allt sem til þarf og setjum upp fullbúið eldhús, sé þess óskað. Okkar hlutverk er að töfra fram þá veislu sem þú vilt halda. Veislusalurinn getur verið lítill, stór, risastór eða jafnvel heil íþróttahöll.

Veislumatseðlar

Jólin
Jólahlaðborð, jólasmáréttir, kalkúna- og hangikjötsveislur fyrir jólaboðið.
7 matseðlarEftir fyrirspurn

Smáréttir og fingrafæði
Fingrafæði, snittur og smáréttaborð fyrir móttökur og standandi veislur.
6 matseðlarFæst í vefverslun

Útskriftir
Fingrafæði og smáréttaborð sem hafa slegið í gegn í ófáum útskriftarveislum.
5 matseðlarFæst í vefverslun

Brúðkaup
Brúðkaupsveislan sniðin að óskum brúðhjónanna, frá forréttum til eftirrétta.
3 matseðlarEftir fyrirspurn

Árshátíðir og viðburðir
Þriggja rétta veislur og steikarhlaðborð, hvort sem gestirnir eru fimmtíu eða fimmtán hundruð.
3 matseðlarEftir fyrirspurn

Kaffihlaðborð og erfidrykkjur
Kaffihlaðborð fyrir afmæli og erfidrykkjur, og við tökum tillit til óþols.
2 matseðlarFæst í vefverslun

Ferðaþjónusta
Veislur á jöklum, í hellum og hvar sem hópurinn er staddur.
4 matseðlarEftir fyrirspurn

Fermingar
Fingrafæði, hlaðborð og brunch fyrir fermingardaginn.
6 matseðlarFæst í vefverslun

Ítalskt hlaðborð
Ítalskir forréttir, aðalréttir og meðlæti sem deilt er við borðið.
1 matseðillEftir fyrirspurn
Setjum saman þinn seðil
Matseðlarnir eru aðeins dæmi. Segðu okkur af tilefninu og við sérsníðum veisluna að þínum óskum.
Senda fyrirspurn